28.10.06

Power Puff ...

Elsku feitabollurnar í sjónvarpinu hjá mér - hér ligg ég í þynnkunni minni og dáist að því hvað þau eru dugleg, án gríns þau eru það, já ég er að horfa á The Biggest Looser, ég er svo löt og þunn að ég nenni ekki einu sinni að finna mér eitthvað skemmtilegra að horfa á *geisp*

Enginn smá árangur líka sem þau eru að ná þarna - ein gellan vildi grennast áður en hún gifti sig, það voru sýndar myndir - fyrir og eftir - ótrúlegt bara, ekkert smá flott stelpa líka.

Oh well - ég er hætt við að fá mér þynnkuburger, ég ætla frekar að borða spelt brauðið mitt sem við kami bökuðum í gær og drekka fullt fullt fullt af vatni, já og fara í göngutúr með Tótu.

Hahaha og ekki eru The Trailer Park Boys verri - ég er að grenja úr mér augun hérna - hehehehehe

Ég hef komist að því að sjónvarpið á skjá1 er frábært svona seinni partinn á laugardögum - jú ég hef ekki kveikt á sjónvarpinu mínu í marga daga, og fer svo á imbafyllerí um leið og ég kveiki á því hehehe.

tenchi þankar

Engin ummæli: