Fyndið hvað sumir dagar eru skemmtilegir. Fyrr í vikunni roðna ég s.s. yfir einni gínunni niðri í vinnu, sem var extra fyndið af því að ég hafði áhorfendur (sem betur fer, alltaf gaman að skemmta sér og öðrum) ... Í dag höfðum við Vala vinkona mælt okkur mót, hittast í hádeginu og fá okkur eitthvað gott að borða. Við ákváðum að hittast á Hressó, niðri í bæ er alltaf jafn gaman að finna bílastæði, en ég var nokkuð heppin, og ekki nóg með það heldur var ég með slatta af klinki líka svo að ég var nokkuð sátt og ánægð.
Svo ég tölti yfir að vélinni sem át peningana mína og geng svo agalega glöð eitthvað í áttina að Hressó, þegar ég er hálfnuð þá fatta ég að ég er enn með miðann sem á að vera í bílnum ... ég er stundum svo utan við mig ... ok ... hló að sjálfri mér og fór tilbaka. Set miðann á sinn stað og rölti aftur af stað, en eitthvað er ég að vesenast yfir töskunni minni á leiðinni og þegar því er lokið og ég lít upp þá munaði litlu að ég hefði gengið á stiga sem lá ofan á vinnubíl þarna, ái það hefði nú verið vont - en djö... hefði það verið fyndið *haha*.
tenchi brosir
3.11.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli