1.11.06

decade

Ég þarf að semja uppsagnarsms - já ég þarf að "dömpa" manni sem ég hef ekki verið með ... áður en ég verð geðveik (ég held að hann sé núþegar geðveikur) ... hvernig gerir maður þetta ... ég hélt að hann myndi fatta áhugaleysið, ég svara ekki sms-unum hans, ég svara ekki símanum ... ég hef ekki áhuga á honum !

Hvað á ég að segja - þú ert vitlaus???

Anyway - skondið atvik í vinnunni í dag, ég fékk það job að klæða kk-gínu í ný föt ... jeeeiiij fullorðins mömmó, bókstaflega *flisss* ... nema ég geng að þessum myndarlíkama og byrja að losa tölurnar á buxunum hans ... verð eitthvað kjánaleg ... læt buxurnar detta niður og eldroðnaði bara .... ég fór svo hjá mér og mér finnst það svo óendanlega fyndið því ég næ ekki alveg hvað ég er að láta snerta blygðunarkenndina mína, kannski þetta extra sensitívt af því að það voru nokkrir myndarlegir karlmenn þarna rétt hjá og fylgdust gaumgæfilega með ???

Allavegana - við Vala vinkona hlógum mikið af þessu eftir á - skemmtilegt

tenchi þankar

Engin ummæli: