3.11.06

Fótbolti

Ég sat á foreldrafundi í gær, vegna hokkímóts á Akureyri, í gjafmildi minni ákvað ég að kaupa á kami íþróttagalla merktan Birninum og 2 pör af Bjarnarins sokkum. Hann er alveg að vera komin með allan pakkan. Mér finnst svoldið gaman af þessu og ég elska að horfa á leiki. Ég verð að viðurkenna það að þegar ég horfi á meistaraflokkana spila, þá finnst mér þeir svoldið sexý, þessi talent, þau eru sexý ... jammmm ...
Eníhú - kami er hjá pabba sínum í nótt, ég tek svo á móti honum beint eftir vinnu, ætli kami verði ekki hjá ma&pa þá, því pabbinn þarf að aðstoða vin sinn við að undirbúa hözzzl ævinnar *haha*.
Ég er að vonast til að ná að vinna eitthvað upp af þessum verkefnum mínum í skólanum þessa helgi og ég vona að ég nái að klára grískuæfinguna fyrir næstu viku - rosalega yrði ég sátt við það ... Annars er planið að liggja jafnvel í videoglápi annað kvöld, taka einhverja fjölskylduvæna mynd og hver veit nema ég splæsi í óhullustu handa okkur mæðginunum.

tenchi þankar

Engin ummæli: